<?xml version="1.0" encoding="utf-8"?>
<oembed>
  <version>1</version>
  <type>rich</type>
  <provider_name>Libsyn</provider_name>
  <provider_url>https://www.libsyn.com</provider_url>
  <height>90</height>
  <width>600</width>
  <title>Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton</title>
  <description>Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega&amp;amp;nbsp; mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina. Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar. Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka. Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Við framlengjum gjafaleikinn okkar með&amp;amp;nbsp;Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu á&amp;amp;nbsp;Facebook síðu Kop.is  Stjórnandi:&amp;amp;nbsp;Einar Matthías Viðmælendur:&amp;amp;nbsp;Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:   Gull Áfengislaus&amp;amp;nbsp;/&amp;amp;nbsp;Verdi Travel&amp;amp;nbsp;&amp;amp;nbsp;/&amp;amp;nbsp;Ögurverk ehf </description>
  <author_name>Gullkastið</author_name>
  <author_url>http://www.kop.is/</author_url>
  <html>&lt;iframe title="Libsyn Player" style="border: none" src="//html5-player.libsyn.com/embed/episode/id/40944950/height/90/theme/custom/thumbnail/yes/direction/forward/render-playlist/no/custom-color/88AA3C/" height="90" width="600" scrolling="no"  allowfullscreen webkitallowfullscreen mozallowfullscreen oallowfullscreen msallowfullscreen&gt;&lt;/iframe&gt;</html>
  <thumbnail_url>https://assets.libsyn.com/secure/item/40944950</thumbnail_url>
</oembed>
